Upplýsingakerfi Fjárvakurs eru í stöðugri þróun til að mæta sífellt auknum kröfum um tímanlegar, áreiðanlegar og hagkvæmar upplýsingar. Ekki skiptir máli hvaða upplýsingakerfi viðskiptavinir okkar eru að nota, því gögn eru færð úr kerfum þeirra yfir í kerfi Fjárvakurs á einfaldan hátt.
Helstu upplýsingakerfi sem Fjárvakur notar eru:
|
|
Fjárhagskerfið Coda |
|
|
Uppáskriftarkerfið E-flow frá Basware |
|
|
Farseðlaumsýslukerfið Mona Lisa frá Softec |
|
H3 - heildarlausn í mannauðsmálum frá Tölvumiðlun | |
|
|
Vakta- og viðverukerfið Vinnustund frá Skýrr |
Upplýsingatæknideild Fjárvakurs er í góðum tengslum við öll helstu hugbúnaðarhús landsins vegna þjónustu og innleiðingar á kerfum og tenginga á milli þeirra. Deildin sinnir alhliða notendaþjónustu á upplýsingatæknisviði, þróun upplýsingakerfa í samstarfi við notendur, verkefnastjórnun og þarfagreiningum, innleiðingu og uppsetningu nýrra kerfa og samskiptum við samstarfsaðila í upplýsingatækni.
Deildarstjóri upplýsingatæknideildar Fjárvakurs er Helga G. Guðmundsdóttir.

