Fjárvakur býr yfir viðamikilli reynslu og þekkingu í þjónustu til flugfélaga og býður viðskiptavinum sínum m.a. upp á þjónustu varðandi úrvinnslu á flugmiðum, bókun, frágang og vinnslu á söluskýrslum, endurgreiðslu ónotaðra flugmiða og sérfræðiráðgjöf á sviði flugmiðaþjónustu. Stór hluti af starfsemi flugmiðaþjónustu Fjárvakurs fer fram hjá ASE sem er dótturfyrirtæki Fjárvakurs í Tallin, Eistlandi.
Flugtekjur
Fjárvakur heldur utan um flugtekjur viðskiptavina sinna og sendir daglega tekjuupplýsingar yfir í upplýsingakerfi þeirra. Fjárvakur notar flugmiðaumsýslukerfið Mona Lisa frá Softec.
Söluskýrslur
Fjárvakur sér um úrvinnslu á söluskýrslum viðskiptavina sinna.
Endurgreiðsla
Fjárvakur veitir þjónustu varðandi endurgreiðslu ónotaðra flugmiða.
Interline þjónusta
Fjárvakur sér um úrvinnslu á reikningum frá öðrum flugfélögum til viðskiptavinar.
Önnur sérfræðiráðgjöf á sviði flugmiðaþjónustu
Fjárvakur veitir ráðgjöf á sviði flugmiðaþjónustu varðandi uppsetningu og hönnun verkferla.
Forstöðumaður flugmiðaþjónustu er Hallur Steinar Jónsson.
Hafðu samband við okkur og fáðu ítarlegri upplýsingar eða kynningu fyrir þitt fyrirtæki.