StarfsmannaþjónustaStarfsmannaþjónusta

Prenta síðu

Traust, öryggi og fagmennska
Nákvæmir útreikningar, tímanleg afhending og örugg meðhöndlun trúnaðarupplýsinga eru lykilatriði í launavinnslu fyrirtækja.  Fjárvakur hefur þessi atriði að leiðarljósi og veitir viðskiptavinum sínum ábyrga og hagkvæma starfsmannaþjónustu í fremstu röð. 

Með því að útvista launavinnslu til Fjárvakurs geta fyrirtæki einbeitt sér að kjarnastarfsemi sinni og látið fagmenn okkar sjá um launamálin auk annarra starfsmannamála.  Fjárvakur býður upp á kerfi og þjónustu í öllu ferlinu frá ráðningu til starfsloka og fyrirtæki geta valið hluta þessarar þjónustu eftir þörfum. 

Mikil reynsla og þekking er meðal starfsmanna Fjárvakurs og liggur styrkur þeirra ennfremur í góðri samvinnu og virkri miðlun þekkingar.  Starfsmenn eru meðvitaðir um mikilvægi afburða þjónustulundar og hafa nýir starfsmenn verið fljótir að tileinka sér þá jákvæðu afstöðu sem ríkir til verkefna, viðskiptavina og samstarfsfólks. 

Hver viðskiptavinur fær fastan launafulltrúa innan starfsmannaþjónustu Fjárvakurs og er mikil áhersla lögð á öryggi og samræmi í þjónustunni.  Launamenn í þjónustu hjá Fjárvakri eru hátt á fjórða þúsund talsins og dreifast á um 30 stéttarfélög. 

Eftirfarandi er listi yfir helstu verkþætti í starfsmannaþjónustu Fjárvakurs.

 

Ráðningar

Auglýsingar, umsóknir og ráðningar

 
Launavinnsla

Móttaka og skráning á skattkortum og tilkynningum frá lífeyrissjóðum
Skráning viðveru og fjarvista
Móttaka og skráning á einstaklingsbundnum launahækkunum
Eftirlit og breytingar samkvæmt gildandi kjarasamningum
Móttaka og skráning á frádrætti
Útreikningur á launauppgjöri við starfslok
Launavinnsla 
Útborgun og skil á launaseðlum, rafrænt / á pappír
Mánaðarlegt uppgjör, greiðsla launatengdra gjalda, 
Sending skilagreina, rafrænt / á pappír
Skil í fjárhagsbókhald
Áramótauppgjör, skil á launamiðum til RSK og starfsmanna, rafrænt / á pappír
Tenging launa við erlenda mynt

 

Sérfræðiaðstoð

Skil til Kjararannsóknarnefndar  
Aðstoð við undirbúning kjarasamninga
Aðstoð við áætlanagerð  
Aðstoð við ferlagreiningu

 

Dagpeningar

Skráning, greiðsla og uppgjör á dagpeningum, skil á launamiða

 

Einkennisföt

Skráning á heimildum og notkun einkennisfatnaðar, skil á launamiða

 

Mannauður

Umhverfi fyrir skráningu og greiningu á flestu því sem snýr að starfsmanninum

Aðstandendur starfsmanns
Hlutir í vörslu starfsmanns
Hæfni og menntun
Starfsferill
Áhugamál
Rafrænn skjalaskápur
Forsniðin skjöl og eyðublöð

 

Fræðsla

Skráning á fræðsluþörf, framboði og þátttöku 
Auglýsing og skráning á námskeið / fræðsluatburði

 

Starfsmannasamtöl

Umhverfi og aðstoð við skráningu og greiningu á starfsmannasamtölum 

 

Önnur þjónusta og þjálfun

Útgáfa vottorða atvinnurekanda
Aðstoð og þjálfun fyrir notendur upplýsingakerfa
Upplýsingagjöf til starfsmanna og stjórnenda

 

Forstöðumaður Starfsmannaþjónustu er Þórhalla Arnljótsdóttir.

Hafðu samband við okkur og fáðu ítarlegri upplýsingar eða kynningu fyrir þitt fyrirtæki.

Nákvæmir útreikningar, tímanleg afhending og örugg meðhöndlun trúnaðarupplýsinga eru lykilatriði í launavinnslu
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli