Fjárvakur hefur sérhæft sig í umsjón fjármálaferla frá árinu 2002, en fyrirtækið var stofnað á grunni fjármáladeilda Flugleiða og dótturfélaga þess. Starfsmenn Fjárvakurs búa yfir áralangri reynslu í rekstri kerfa og framleiðslu fjárhagsupplýsinga sem uppfylla ströngustu kröfur stjórnenda.
Þjónusta Fjárvakurs skiptist í fjármálaþjónustu, starfsmannaþjónustu og flugmiðaþjónustu.
Viðskiptavinir fyrirtækisins eru meðalstór og stór fyrirtæki sem sjá sér hag í því að einbeita sér að kjarnastarfsemi sinni og láta fjármálasérfræðinga sjá um fjármálaferlana.
Framkvæmdastjóri Fjárvakurs er Magnús Kr. Ingason.
Kennitala Fjárvakurs: 521202-2620.