ÚtvistunÚtvistun

Prenta síðu

Fyrirtæki eru sífellt að leita leiða til að auka framleiðni og lækka kostnað.  Útvistun fjármálaferla er í auknum mæli sú leið sem fyrirtæki velja til þess að ná þessum markmiðum.

Með útvistun verkferla er átt við að fyrirtæki flytji framkvæmd þeirra yfir til utanaðkomandi aðila sem hefur sérþekkingu í viðkomandi verkferlum.  Á þann hátt geta fyrirtæki einbeitt sér að kjarnastarfsemi sinni og látið fagfólk um aðra ferla.  Þeir verkferlar sem Fjárvakur tekur að sér fyrir viðskiptavini sína snúa að fjármálum, starfsmannamálum og flugmiðaþjónustu.

 

Könnun var framkvæmd af Accenture og Economist Intelligence Unit meðal stjórnenda alþjóðlegra fyrirtækja þar sem spurt var um viðhorf þeirra gagnvart útvistun fjármálaferla.  Eftirfarandi þætti nefndu stjórnendur sem aðaldrifkraft, helstu kosti og lykilþætti til velgengni í útvistun fjármálaferla.

 

Aðaldrifkraftur fyrir útvistun á fjármálaferlum

Krafa um lækkun kostnaðar
Lægri verð þar sem fleiri og fleiri fyrirtæki ná bættum árangri vegna útvistunar
Bætt tækni og þekking útvistunaraðila
Aukin gæði á þjónustu útvistunaraðila
Aukin byrði á innanhúsaðila að uppfylla skattalög og aðrar reglugerðir
Þrýstingur til að auka gagnsæi reikninga vegna uppgjörshneyksla 
Auðveldara að fjármagna útvistun innan fyrirtækja

 

Helstu kostir þess að útvista fjármálaferlum

Lækkun kostnaðar
Bætt gæði og þjónusta fjármáladeildar
Aukinn áreiðanleiki upplýsinga og samanburðarhæfni
Kostur á því að taka fyrr upp bestu tækni
Komist hjá fjárfestingum í mannauð og upplýsingatækni
Aukin áhersla á kjarnastarfsemi fyrirtækis
Fyrirtækjum gert kleift að stækka hraðar
Sveigjanleiki til að breyta föstum kostnaði í breytilegan

 

Lykilþættir til velgengni í útvistun fjármálaferla

Gagnkvæmt traust milli aðila
Skilgreining á þjónustu og þjónustustigi
Virkur stuðningur fjármálastjóra og annarra æðstu stjórnenda við útvistunina
Samhæfður tæknigrunnur
Skilvirkir ferlar til staðar innan fyrirtækisins
Hæfni útvistunaraðila

Do what you do best and outsource the rest - Tom Peters

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli